Wednesday, April 2, 2008

Brennuvargar

Al Gore. Hvað var hann að gera á Íslandi. Hann hefði frekar átt að koma hingað og spjalla aðeins við fólkið hérna og segja þeim hvað það væri miklu betra fyrir heiminn ef það hætti að brenna öllu afgangsrusli í görðunum hjá sér. Þá getur hann líka flogið meira á einkaþotunni sinni ef aðrir eru hættir að menga. Síðan er kannski spurning að fara að setja af stað söfnun fyrir afísingarbúnað á einkaflugvélina hans, því samkvæmt vísindamönnum er jörðin víst að fara inn í kuldatímabil. Æjji

Sunday, March 30, 2008

Heitt heitt heitt!


Hérna er svona týpískt dæmi um klassíkann og að sumra mati tímalausann Ungverskann arkitektúr.
Núna held ég að sumarið sé loksins að koma hérna. Það er búið að vera mjög heitt hérna um helgina. Ég var loksins að komast aðeins út aftur, eftir langa inniveru, ég var að verða ruglaður á að hanga hérna inni í þessum hita. Við erum nú reyndar með air condition en maður reynir að spara hana aðeins þangað til að það verður komin hitabylgja hérna. Stoppaði á leiðinni og keypti mér appelsínur og kiwi. Það má segja margt misjafn um þetta land og fólkið hérna en ég held að ég hafi hvergi fengið jafn bragðgóða ávexti eins og hérna. Það er kannski út af því að ég held að þeir noti ekkert skordýra eitur og rotvarnarefni. En ég veit ekki, almennt þá skemmist matur hérna miklu fyrr en heima á Íslandi. T.d. eins og mjólk og brauð. Brauðið er t.d. óætt eftir 2 daga.

Tuesday, March 25, 2008

Áhugaverðar staðreyndir um Debrecen?


Ég náði að smella mynd um daginn af einum af þeim sem eru alltaf að gramsa í ruslinu hjá okkur. Óþolandi. Ekkert sem maður getur gert í þessu. Sígaunarnir hérna eru mjög aktívir í þessu. Síðan eru víst líka alþjóðlegar flóttamannabúðir hérna við borgina í yfirgefinni sovéskri herstöð, las það á netinu. Borgin hérna er að reyna að losa við þær í burt, veit ekki hvernig það á eftir að ganga. Fólkið hérna er víst orðið alveg uppgefið á veseni í kringum þetta fólk, því að það er víst ekki lokað inni búðunum svo að það á víst að vera mikið að flakki hérna um borgina. Ég get ekki sagt að ég hafi tekið spes eftir því. Þeir segja að 10% af öllum þjófnuðum í matvöruverslunum séu þeim að kenna. Jæja, maður hefur haft nógan tíma til að hanga á netinu síðan að ég brákaði á mér ökklann í fótbolta um daginn. Búinn að chekka á einu sem að ég hefði betur látið vera, það virðist vera þannig að það eru víst bara um 600 km héðan til Chernobyl. Þetta er svona eins og frá Reykjavík til Húsavíkur er það ekki? Frekar óhuggulegt. Það féll víst geislavirkt ryk hérna '86, og allir ávextir sem að maður er að éta hérna eru ræktaðir lokal.

Saturday, March 22, 2008

Hvergi annarsstaðar en í Ungverjalandi, eða hvað?

Ungverjar eru sannkristin og umburðarlind þjóð eins og eftirtaldur linkur sannar
http://www.sexiside.hu/debrecen_police_give_teen_goat.html
Við búum einmitt í þessu sama héraði.

Friday, March 21, 2008

Hvort er maður að koma eða fara?

Stundum veit maður það ekki hérna. Ungverjar eru greinilega að nútímavæðast með öllu tilheyrandi, svo sem tökuorðum. Alltaf þegar maður heilsar þeim þá segir maður "cia" eða "cies dok(ekki rétt skrifað) þegar maður er að heilsa mörgum. Síðan segir maður líka cia þegar maður er að kveðja. Það væri ekkert mál nema þá segja þeir alltaf "hello". Mér finnst þetta alltaf jafn ruglandi. Þeir skilja þá ekkert þegar að ég segi til baka "goodbye".
Í dag er rusla dagur, ég fór út með ruslið klukkan 8. Fljótlega voru komnir sígaunar að gramsa í ruslinu, ég rak eina konu í burtu og hún urraði á mig eins og hundur. En það breytti ekki neinu því að það var strax kominn einhver annar kall. Hann fann vikugamla pizzu sneið og útrunninn kjúkling og var hæstánægður með fundinn.

p.s. ef Steinunn Valdís ráðfrú væri Ungverji, myndi hún þá vilja láta kalla sig Ungverju?

Wednesday, March 19, 2008

Geisp

Ég skildi ekki alveg hvað var að dagmömmunni sem strákarnir voru hjá í Hafnafirðinum. Alltaf þegar ég kom að ná í strákana, þá fannast manni eins og maður ætlaði aldrei að komast þarna út vegna þess að hún talaði og malaði og talaði og malaði. Ég held að ég sé farinn að gera þetta líka, sorglegt. Við fengum loksins dvalarleyfin okkar í gær, eða sem sagt, ég og strákarnir. Sara var löngu komin með sitt. Það kom virkilega á óvart hvað allt gekk smurt fyrir sig, eiginlega var ég búinn ákveða það í hausnum á mér að þetta yrði vesen. Við fengum lánaðann bíl hjá Þengil í gær (takk Þengill) og gátum farið í fyrsta bíltúrinn í langann tíma. Það var rosalega fínt að komast aðeins út úr borginni en strákarnir voru ekki alveg í ferðagírnum, enda búnir að vera á flakki með okkar alveg síðan um morguninn.

Monday, March 17, 2008

Jæja, loksins.

Jæja, loksins er ég búinn að sitja upp þessa blogg síðu hérna. Ég ætla að reyna að setja eitthvað af myndum og svona hérna inn frá Ungverjalandi, margt athyglisvert að sjá hérna, allt frá því fáránlega útí hið sorglega og ömurlega og allt þarna á milli. Og svona auðvitað einhverja alvöru krassandi austur evrópskar lífreynslusögur. Maður er eins og svampur að sjúga í sig þetta magnaða menningarland.